Lággjaldaflugfélagið Flybe virðist ekki ætla að halda áfram flugi til Íslands mikið lengur ef marka má vef flugfélagsins. Þar lýkur áætlunarflugi þess strax í mars.

Engin sumaráætlun hjá Flybe. Mynd EDDIE
Fararheill hefur ekki fengið viðbrögð við fyrirspurn um málið en undarlegt verður að telja að vera ekki búnir að framlengja nú þegar. Nema ætlunin sé að hætta flugi?
Í öllu falli er óráð að bóka með flugfélaginu að svo stöddu en þeir fljúga sem kunnugt er aðeins til Keflavíkur frá Birmingham.







