Sagt er að þolinmæði þrautir vinni þó deila megi um slíkt í tilfelli krabbameinssjúklinga. En annað er það sem þolinmæði getur haft í för; bestu kjör á ferðum.

Lúxusskipið Norwegian Epic þykir með þeim betri og mikið má vera að leiðist fólki um borð. Mynd NCL

Lúxusskipið Norwegian Epic þykir með þeim betri og mikið má vera að leiðist fólki um borð. Mynd NCL

Þar er átt við þá þolinmæði sem oft þarf til ef grípa á gæs þegar ferðatilboð detta inn með löngum fyrirvara. Við viljum jú flest fá hlutina upp í hendur eigi síðar en strax og almennt er þolinmæði á undanhaldi.

Þörf er þó á slíku langi fólk að sigla um Miðjarðarhaf í vikustund í nóvember næstkomandi um borð í lúxusdalli með fullu fæði fyrir lágmarksverð.

Þar um að ræða siglingu Norwegian Epic frá Barcelona áleiðis til Napolí, Civitavecchia/Róm og Livorno áður en lagt er í hann til Cannes í Frakklandi og síðan Mallorca áður en komið er í höfn í Barcelona að nýju.

Stutt en laggott og minnst tíu tíma stopp á hverjum stað fyrir sig sem gefur færi að kíkja til klassískra staða á borð við Róm, Vesúvíus, Písa og Flórens svo einhverjir séu nefndir. Ágætt líka að þetta er vel utan háannatíma svo ekki þarf að troðast um í þvögum ferðafólks til að sjá undur þessara borga.

Þessi ákveðni túr fæst nú gegnum þýska ferðaskrifstofu í innriklefa og með flugi til og frá Berlín niður í 121 þúsund krónur á mann miðað við gengi dagsins eða samtals 242 þúsund á hjón eða par. Frá Íslandi og til baka er vel komist niður í 25 þúsund krónur með góðum fyrirvara á mann eða 50 þúsund samtals og þannig er heildarkostnaður á þessari ferð undir 300 þúsund. Svo má bæta við nokkrum dögum í Berlín ef sá gállinn er á fólki.

Allt um þessa ákveðnu ferð hér. Hér er líka vegvísir okkar til Berlínar / Rómar / Barcelona / Mallorca / Napolí ef það gagnast einhverjum.

Ekki gleyma heldur hótelbókunarvél okkar ef þú vilt gista í Berlín. Hún hefur ekki verið valin sú besta í veröldinni tvö ár í röð fyrir ekki neitt.