Fátt er leiðinlegt við að eyða sumardögum að hluta til á Tenerife og sjaldan áður hefur verið jafn auðvelt að komast þangað og nú þegar tvö flugfélög berjast um að ferja okkur í beinu flugi.

Tenerife er óumdeilanlega mun fallegri en Kanarí sjálf. Mynd Carlos SM

Tenerife er óumdeilanlega mun fallegri en Kanarí sjálf. Mynd Carlos SM

Það þýðir að við þurfum ekki lengur að hengja hatt okkar á tilteknar ferðir ferðaskrifstofanna heldur getur ráðið sjálf hvar okkur langar að vera, gera eða búa.

Ekki svo að skilja að ferðaskrifstofurnar hafi verið eða séu að bjóða gamlar þreyttar lummur en stundum þurfum við annað en þar er boðið upp á. Til dæmis ef stórfjölskyldan vill vera saman.

Þá er engin spurning að leigja villu séu þetta sex til tíu manns saman í hóp. Það er oft á tíðum kannski ekki ódýrara en taka næstu hótelherbergi en það er svo margt sem er betra við að vera öll í einu húsi sem við þurfum varla að tíunda hér.

Þess vegna datt okkur í hug að gera leit að skemmtilegum villum á eynni. Villum sem eru að mestu leyti lausar í sumar þegar þetta er skrifað, að mestu leyti ekki rándýrar og þar sem sex eða fleiri geta hallað höfði möglunarlaust. Endilega kíkið og í þokkabót er hér neðst hótelleitarvél Fararheill en þar líka er hægt að finna íbúðir, villur, sveitasetur eða aðra gistikosti með því að þrengja leitina.

[alert]Til umhugsunar: í þessu tilviki leituðum við aðeins hjá spænskum leigusölum en reynslan hefur sýnt að þar er síður smurt eins mikið ofan á verð og annars er stundum raunin. Farið alltaf varlega í netviðskiptum og ekki láta neina peninga af hendi fyrr en þið eruð 100 prósent. Helst ekki fyrr en þið eruð komin á staðinn og með lykla í hönd. Engin ábyrgð tekin af hálfu Fararheill heldur aðeins verið að benda á möguleika[/alert]

♥  Villa Adeje

Þessi er á besta stað í hlíðunum við Adeje strönd sem Tenerife-elskendur ættu að þekkja. Hér geta tíu manns haft það gott og haft allt til alls og meðal annars þrjár sundlaugar. Vikan á þessum stað yfir háannatíma kostar um 420 þúsund krónur sem gerir um 70 þúsund á haus ef sex deila saman kostnaði. Meira hér.

 ♥  Chalet Torviscas

Aðeins vestar en Costa Adeje er hin vinsæla Playa de las Américas sem aftur margir ættu að þekkja af fyrri ferðum. Hér er ágætt húsnæði til leigu með öllum lífsnauðsynlegustu nauðsynjum eins og einkasundlaug og nuddpottur vitaskuld. Plús að hér er fínn franskur veitingastaður í næsta húsi. Hér er miðað við sex manns hámark og vikan kostar ekki nema 175 þúsund krónur. Deilum því í þrjá og hver og einn greiðir aðeins 58 þúsund krónur. Brandari. Meira hér.

♥  Villa la Galea

 Töluverður lúxus hér í þessu 170 fermetra húsi með sundlaug og skammt frá ströndinni. Hér geta sex fullorðnir plús eitt barn dvalið í dúlleríi og þurfi fleiri sæng og kodda er hægt að leigja næstu villu við hliðina líka og stækka þannig hópinn upp í tólf. Hér hækkar verð mikið í byrjun júlí en fram að því má taka hér vikutíma niður í 240 þúsund krónur miðað við sex saman. Ekkert hræðilegt við það. Meira hér.

♥  Villa Tijoco

Önnur lúxusvilla hér í hæðum Costa Adeje og pláss fyrir tólf manns með góðu móti. Góð sundlaug og stór gróðursæll garður og innandyra ýmislegt til að gera dvölina ljúfari. Nánast engin þörf að fara neitt hér úr húsi en þá er tæpur kílómeter í ströndina ef svo ber undir. Verðmiðinn í júlí í viku er 570 þúsund krónur eða 95 þúsund á kjaft ef sex deila því niður. Töluvert lægra verð á öðrum tímum. Meira hér.