Allt að níu klukkustunda töf er á flugi Icelandair frá Billund þennan daginn. Sem kemur fyrir á bestu bæjum en að láta ekki kóng, prest né farþega sjálfa vita er vítavert kæruleysi.

Margra klukkustunda töf hjá Icelandair og enginn veit neitt.

Margra klukkustunda töf hjá Icelandair og enginn veit neitt.

Sem fyrr gefur Icelandair engar upplýsingar um hvað olli töfum á vél flugfélagsins frá Billund í Danmörku en vélin sem átti að lenda um miðjan dag mun ekki koma til landsins fyrr en klukkan eitt eftir miðnætti í fyrsta lagi.

Gera má að því skóna að um alvarlegri vélarbilun sé að ræða fyrst töfin er þetta löng en sjá má á fésbókarvef flugfélagsins að nokkrir farþegar eru lítið ánægðir með upplýsingaskort.

Þeir hinir sömu geta þó huggað sig við að fá máltíðir á flugvellinum og eitt hundrað prósent víst að þeir eiga líka rétt á skaðabótum að upphæð 400 evrum á haus.

skot