Við vorum komin á fremsta hlunn með að hafa samband við Neytendastofu en svo sá Icelandair að sér með auglýsingar sem ekki eru alveg sannleikanum samkvæmar.

Lengi vel bauð Icelandair „besta“ verð á gistingu en nú kallast þetta „frábært“ verð. Skjáskot

Lengi vel bauð Icelandair „besta“ verð á gistingu en nú kallast þetta „frábært“ verð. Skjáskot

Síðustu vikurnar hafa verið áberandi netauglýsingar frá flugfélaginu Icelandair þar sem æði stórt var tekið upp í sig eins og sjá má á fyrri myndinni hér að ofan. Þar segist flugfélagið „tryggja besta verð„ á gistingu erlendis.

Það er yfirlýsing sem flugfélagið getur ekki staðið við sem var ástæða þess að við tókum skjáskot af þeirri auglýsingu sem eins og oftar er ætlað að kasta ryki í augu fólks. Einstaklega jákvætt alltaf þegar stórfyrirtæki sem mala gull geta ekki komið hreint og beint fram við fólk.

Það er nefninlega lífsins ómögulegt fyrir Icelandair, sem er með gistisamning við hótelbókunarvél Booking, að lofa „besta“ eða „lægsta“ verði á gistingu erlendis. Í fyrsta lagi eru aðeins um 180 þúsund aðrir aðilar að bjóða upp á sömu hótelbókunarvél og Icelandair. Til dæmis Dohop, Wow Air, easyJet og fleiri. Icelandair hefur ekki betri kjör hjá Booking en aðrir og getur því ekki einu sinni boðið lægra verð en þeir aðilar á neinni gistingu.

Forráðamenn virðast hafa kveikt á þessari peru eða einhver hefur bent þeim á ósannsöglið því fyrri auglýsingin er alfarið horfin og auglýsing númer tvö komin í staðinn. Þar gengisfellir Icelandair gistingu sína úr „bestu“ í „frábæra.“

Frábært er afar huglægt mat auðvitað en í það minnsta hægt að færa einhver rök fyrir. Sem er ekki hægt með „besta“ og ekki aðeins vegna þess að margir aðrir eru að bjóða sömu vöru og Icelandair heldur líka vegna þess að Booking er ekki endilega fremst jafningja í hótelleit eins og Fararheill hefur ítrekað bent fólki á. Úrvalið hjá Booking er takmarkað og þó þeir bjóða oft vel og stundum allra lægsta verð á gistingu er það ekki eitthvað sem taka má með í bankann.

Eins og þessi handahófskenndu dæmi af hótelbókunarvél Fararheill sýna og sanna. #ekkilátaplataykkur

  • Hotel Berlin Kurfuerstendamm í janúar. Booking að bjóða SJÖTTA lægsta verð

hotelté

  • First Excelsior Kaupmannahöfn í mars. Booking að bjóða SJÖTTA lægsta verð

hoteltle

  • So Sienna Hotel London í ágúst. Booking að bjóða ÞRETTÁNDA lægsta verð.

hotelteeee

Eins og sést á síðustu myndinni er 30 þúsund króna munur á gistingu hjá þeim er best býður og bókunarvél Icelandair. Ekki halda að þetta sé einsdæmi. Skoðaðu bara bókunarvél okkar og gerðu samanburð sjálf/ur.