Það er nokkuð síðan innlendar ferðaskrifstofur hættu að mestu skipulögðum ferðum til hinnar ágætu eyju Rhodos í Grikklandi en um tíma fór enginn Íslendingur utan án þess að það væri áfangastaðurinn. Nú er hægt að rifja upp gamlar funheitar stundir á fimm stjörnu hátt og á fimm stjörnu verði.

Margir eiga funheitar minningar frá Rhodos í Grikklandi. Mynd Francesco Sgroi
Ferðaskrifstofan Fleetwood er að bjóða þessa stundina allnokkrar ferðir til Rhodos þar sem gist er á fimm stjörnu Sheraton með hálfu fæði og í boði að vera eina viku, tvær eða allt þar á milli strax upp úr páskum í apríl og maí. Heildarverð á slíkri ferð í tíu nætur svo eitt dæmi sé tekið samtals 194 þúsund krónur á hjón eða par eða innan við hundrað þúsund á mann.
Æði gott bara nema að við þetta þarf að bæta flugi héðan til Bretlands og heim aftur. Hér er heppnin með okkur því flugið í umrædda ferð til Rhodos er í boði frá fjölda flugvalla í landinu og þeirra á meðal Manchester, Glasgow, Bristol, London eða Luton. Nett leit sýnir að til Luton og Bristol og London er komist út og heim aftur í apríl milli 20 og 25 þúsund á mann þegar þetta er skrifað hjá easyJet og Wow Air.
Ergo, fimm stjörnu Rhodos á ljúfum tíma er ykkar fyrir samtals 244 þúsund krónur og klink til eða frá. Ekkert athugavert við þau kaup.







