Dimmur og drungalegur staður í vesturhluta Manhattan gæti orðið heimsins fyrsti almenningsgarður sem er neðanjarðar ef áætlanir ganga eftir.

Næsti almenningsgarður New York verður líklega neðanjarðar.

Næsti almenningsgarður New York verður líklega neðanjarðar.

Staðurinn er stór og ljót yfirgefin skemma undir einni járnbrautarlínu borgarinnar en verkfræðingar og arkitektar hafa nú unnið sleitulítið að því að hanna þar heillandi garð sem almenningur getur notið í framtíðinni. Teikningar klárar, hönnun lokið og borgaryfirvöld fyrir sitt leyti gefið grænt ljós. Aðeins á því eftir að hefja framkvæmdir og stefnt er á að byrja á næsta ári og ljúka við allt saman eigi síðar en árið 2018.

Lengi hafa ýmsir hönnuðir og framsæknir listamenn séð fyrir sér að breyta ljótum skuggasvæðum í eitthvað fallegra og betra en ennþá er enginn slíkur garður til í veruleikanum. Þessi verður því sá fyrsti ef af líkum lætur. Og miðað við teikningarnar hreint ekki slæmur staður.