Við vorum næstum búin að láta plata okkur. Skeyti frá flugfélaginu SAS barst okkur uppúr klukkan 14 þennan daginn þar sem auglýst er flug aðra leið til Osló niður í 13.920 krónur. Sem er allgott verð en á bara ekki við rök að styðjast.
Það er að segja að hafi einhvern tímann verið í boði fargjald aðra leið með sköttum, gjöldum og tösku á 13.920 krónur þá kláraðist það á fyrstu mínútum. Allra lægsta verð aðra leiðina frá Keflavík til Osló fram til ágúst á næsta ári kostar á vef SAS 17.860 krónur en ekki 13.920 krónur.
Viðurkennast skal að þetta mun vera í fyrsta sinn sem við stöndum SAS að svona drullumalli. Mælum því alls ekkert með flugi hjá þeim. Bendum fremur á Icelandair sem er með slatta af ferðum aðra leiðina næstu mánuði niður í 15.580 krónur ellegar Norwegian sem býður flugið niður fyrir tíu þúsund á stundum en þá án farangurs.








