Á Kýpur eiga menn í megnustu vandræðum. Landið í raun gjaldþrota og hefði líkast til farið fram af brúninni hefði Evrópusambandið ekki hlaupið undir bagga. En það þýðir að herða verður á sultaról og reyna að trekkja enn fleiri ferðamenn til eyjarinnar og það er aðeins gert með sífellt betri tilboðum.

Um það er fróðir sammála að norðurhluti Kýpur er töluvert fallegri en syðri hlutinn. Mynd Thomas Olson
Kýpur hefur nefninlega átt sína daga í sólinni ef svo má að orði komast og töluvert síðan mesti glansinn fór af ferðalögum til þeirrar Miðjarðarhafseyju. Eyjaskeggjar eiga því ekki jafn auðvelt með að heilla útlendinga til heimsóknar og ekki eru nein eldgos að hjálpa til þar heldur. Ekki er heldur neinn plús að enn rífast menn yfir eyjunni; Tyrkir heimta norðurhlutann en Grikkir halda sem fastast í suðurhlutann.
Sem tengist dálítið merkilegu tilboði sem ferðaskrifstofan Cyprus Paradise er að bjóða þessa stundina og nær til ferða í nóvember og desember næstkomandi. Tilboðið hljóðar nefninlega upp á dvöl Tyrklandsmegin í hinum fallega bæ Kyrenia í vikutíma á fjögurra stjörnu hóteli með hálfu fæði og herlegheitin kosta aðeins 58 þúsund krónur frá Bretlandi.
Bætum við þetta fargjaldi fram og aftur til Íslands með Wow Air á lægsta mögulega verði þessa mánuði, 23 þúsund krónur án farangurs, og þannig má komast í þessa ágætu ferð fyrir alls 82 þúsund alls á mann miðað við tvo. Sem er kringum 40 þúsund króna lægra verð en finnst á sólarferðum innlendra ferðaskrifstofa þessa sömu mánuði að meðaltali. Mögulega þarf að eyða nótt í London en hvenær hefur það drepið nokkurn mann.
Sakar ekki að kíkja. Smáatriðin hér.







