Það allra sniðugasta sem neytendur alls staðar geta gert er að sýna lit þegar fyrirtæki sýna lit á móti. Og miðað við það sem hefur verið í boði héðan til Alicante undanfarin misseri er Wow Air að bjóða aldeilis fína díla á flugi þangað frameftir hausti.
Wow Air flýgur milli Keflavíkur og Alicante fram í nóvember á þessi ári áður en tekin er pása á þeirri leið til næsta árs. Það væri leikur einn fyrir flugfélagið að dúndra upp verðinu á þeim ferðum enda samkeppnin engin eftir 21. október þegar Primera Air hættir líka reglulegu flugi sínu þangað. Það gerir Wow Air þó ekki. Þvert á móti eiginlega því hægt er að fljúga með flugfélaginu til dæmis þann dag aðra leiðina út fyrir 14.895 krónur með sköttum og gjöldum þegar þetta er skrifað.
Þá kann einhver að benda á að heimferðin til baka kostar nú öllu meira og það vissulega rétt en athugun Fararheill á heimferð á fjórum dagsetningum í nóvember leiðir í ljós að flug fæst niður í 22 þúsund krónur í öllum tilfellum nema einu þessa stundina.
Samtals gætu áhugasamir því notið síðustu sólargeislanna á Spáni þetta haustið fyrir 37 þúsund krónur rúmar. Það er ekkert fráleitt verð ef þú spyrð okkur en til samanburðar er Primera Air að bjóða flugið aðra leiðina í september og október á sama verði á flestum dagsetningum.
Svo náttúrulega sparar þú töluvert til viðbótar með því að nota hótelbókunarvél Fararheill. Hvaða annar bókunarvefur er að finna nótt í stórri íbúð á vinsælu golfsvæði hér á þessum tíma undir tíu þúsund krónum?
En ekki láta nægja að grípa þessa gæs. Það eru aðeins 2.600 önnur hótel og gististaðir í boði í Alicante héraðinu og allt á botnverði 🙂








