Vart hefur fram hjá lesendum farið að Fararheill elskar Vueling hið spænska. Ekki aðeins er flugfélagið sýknt og heilagt að bjóða allra lægsta verð á flugi til Barcelona heldur er líka eðalfínt að fljúga með flugfélaginu. Ekki versnar það nú þegar sumarútsalan er hafin.

Alvöru útsala á flugferðum hjá Vueling

Alvöru útsala á flugferðum hjá Vueling

Hægt er að finna flug til ýmissa átta með Vueling þessa stundina og næstu sex dagana allt niður í 30 evrur sem gera miðað við gengi dagsins heilar 4.700 krónur. Þar er miðað við flug aðra leið með sköttum og gjöldum á einn einstakling en farangur kostar aukalega.

Fararheill hefur bent ferðaþyrstum á hversu sniðugt sé að brúka Barcelona sem fyrsta stopp en ekki aðalstopp og fljúga þaðan áfram hingað og þangað með Vueling. Í boði frá Barcelona eru tæplega eitt hundrað áfangastaðir í heildina og jafnvel þó aðeins sé verið  að ferðast innanlands á Spáni má spara bæði tíma og peninga með flugi í stað lestarferða eða bílaleigubíls. Það höfum við gert ítrekað.

Ólíkt þeim íslensku sem bjóða tólf stunda eða 24 stunda tilboð er Vueling ekki að stressa fólk með slíku. Útsöluverð gildir á tilteknum ferðum og dagsetningum næstu sex sólarhringana og engin þrjú sæti í boði eins og sumir telja sniðugt heldur ein milljón sæta.

Heimasíðan.