Efist einhver um að íslensku flugfélögin keyra almennt á feitari álagningu en erlend gæti nægt að skoða fargjöld aðra leiðina til Barcelona í næsta mánuði. Úttekt Fararheill leiðir í ljós, eins og síðustu mánuði, að spænska flugfélagið Vueling er almennt að bjóða best og munar þar allnokkrum þúsundköllum sem fyrr.

Íslensku flugfélögin dýrari en spænskt á flugleiðinni Keflavík-Barcelona

Íslensku flugfélögin dýrari en spænskt á flugleiðinni Keflavík-Barcelona

Við skoðuðum öll fargjöld Vueling hins spænska og Wow Air og Icelandair aðra leiðina til Barcelona í júlí og sú úttekt sýnir ýmislegt forvitnilegt. Fyrir utan að Vueling er að bjóða lægsta verð, 20.112 krónur án farangurs, reynist Icelandair bjóða tvívegis lægra verð en Wow Air.

Þegar þetta er skrifað fæst flug með Icelandair með tösku meðferðis eins og venjulega niður í 26.780 krónur á tveimur dagsetningum, 20. og 22. júlí meðan allra lægsta verð hjá Wow Air þann mánuðinn kostar 27.895. Hjá Wow er engin taska innifalin en sé ein slík tekin með er allra lægsta fargjald komið yfir 30 þúsund krónur.

Þetta er samt einföldun því heilt yfir er Wow Air að bjóða mun betur en Icelandair. Meðalverð kringum 31 þúsund krónur en öllu nær 45 þúsund krónum hjá Icelandair.

Það breytir ekki því að Vueling er að bjóða best. Bæði er lægsta fargjald þeirra langlægst en einnig heilt yfir. Sama gildir þó þar og hjá Wow Air að engin er taskan innifalin á lægstu fargjöldum.

* Verð kórrétt kl. 8:40 þann 7. júní 2014. Hafa skal í huga að verðbreytingar hjá öllum flugfélögum gerast hratt.