Þó Glasgow hafi tekið miklum breytingum til hins betra hin síðari ár er borgin enn þokkalega drungaleg og leiðigjörn sem er auðvitað ástæða þess að flestir nota borgina til að versla en ekki skoða sig um. Sérstaklega í nóvember þegar regn og slabb er oft staðreynd utandyra.
Við rákum augun í það sem kallað er „frábært“ ferðatilboð á vef Icelandair en þar er um að ræða þriggja nátta ferðir til Glasgow seinnihluta nóvembermánaðar. Flug fram og aftur og gisting á þriggja stjörnu hótelum með morgunverði og verðmiðinn 123.800 krónur á parið.
Skiljanlega vill flugfélagið koma ferðum sínum á framfæri og hagnast aðeins á í leiðinni en það er óþarfi að kalla það sem er í besta falli miðlungs tilboð „frábært.“ Það einungis gjaldfellir orðið og dregur úr gildi þess þegar einn daginn flugfélagið býður loks „frábært“ tilboð. Við köllum þetta úlfur, úlfur sindrómið.
En leiki sannarlega áhugi á að kíkja til Skotlands í nóvember er leikur einn að setja saman það sem við kölluð hiklaust „frábært“ ferðatilboð.
Við bókum flug fram og aftur til Edinborgar, sem óneitanlega er skemmtilegri en Glasgow, og lengjum ferðina úr þremur dögum í fjóra. Við fljúgum með easyJet þráðbeint og það kostar parið nú samtals 34 þúsund krónur sé flugið keypt núna en aðeins handfarangur innifalinn.
Í kjölfarið förum við á hótelleitarvél Fararheill og þar sem flugið er hræbillegt ætlum við að gera okkur smá dagamun og gista á fjögurra stjörnu Ritz í miðborg Edinborgar. Fjórar nætur þar, 21. nóvember til 25. nóvember kosta alls 45.709 krónur.
Dvölin í Edinborg kostar með þessu móti í heildina rúmar 79 þúsund krónur. Dvölin lengri og betri en Icelandair er að bjóða og kallar „frábært“ fyrir 123.800 krónur. Þarna sparast rúmar 40 þúsund krónur sem ólíkt skemmtilegra er að eyða í einhverja vitleysu.
Hvor þessara ferða flokkast sem „frábær“ í þínum huga?








