Endur fyrir löngu var það illa geymt leyndarmál að forsvarsmenn einnar verslunarkeðju hérlendis verðlögðu einn einasta kartöflupoka á helmingi lægra verði en aðra og geymdu þann poka annað hvort grafinn á botni í kartöflurekka eða beinlínis inni á lager. Með þessu háttalagi var alltaf til einn hræódýr poki þegar verðlagseftirlitið kom í heimsókn og alltaf var verslunin með lægsta verð á kartöflum í könnunum.
Svindl kunna einhverjir að hugsa. Aðrir taka enn harðar til orða en þetta er ekkert nýtt og þaðan af síður eru slíkir viðskiptahættir á undanhaldi.
Wow Air auglýsir á heilsíðu í Fréttablaðinu í dag vikuferð til Costa Blanca á Spáni frá 82.900 krónum miðað við tvo saman eða samtals 165.800 krónur. Þeir kalla þetta Wow Sumar og er sannarlega bitastæður pakki miðað við það sem gerist.
En ekki alveg. Nema hægt sé að túlka 26. september sem „sumar“ þá er þetta blekkjandi. Fram að þeim tíma er engin sjö daga ferð til Costa Blanca nálægt því að kosta parið eða vinina 165.800 krónur.
Þvert á móti. Meðalverð yfir títtnefndan „sumartíma“ á þessari sjö daga ferð á parið er nær lagi að vera kringum 240 þúsund krónur eða rétt tæplega hundrað þúsund krónum dýrara en hér er auglýst.








