Líkegt má telja að einn og annar Íslendingur sé farin að hugsa sér gott til glóðarinnar undir sólinni í Torrevieja eða nágrannahéraði næsta sumarið. Jafnvel farin að fletta síðum á íbúðaleigum til að finna góða íbúð eða villu á vægu verði.

Torrevieja á Spáni. Óstaðfestar heimildir herma að hér og í næsta nágrenni eigi yfir fjögur þúsund Íslendingar eignir. Mynd REL
Hérlendis eru nokkrir aðilar að bjóða milliliðaþjónustu varðandi íbúðaleigu á þessu svæði sem er líklega fyrir utan Ventura svæðið í Flórída vinsælustu flóttamannabúðir Íslendinga í veröldinni ef svo má að orði komast enda meirihluti að flýja veður og vinda í heimalandinu.
Þar má nefna aðila á borð við Spánarferðir sem leigja lúxusvillu sína á 250 þúsund krónur yfir háannatímann. Costablanca.is er æði góður vefur að okkar mati og nokkuð úrval þar í boði. Vefurinn sumarhusaspani.is er annar boðlegur svo ekki sé minnst á spann.is.
Íbúðaleiga er frábær hugmynd ef margir eru saman í hóp hvort sem er stórfjölskyldan eða vinahópurinn. Stærstu villurnar eru með pláss fyrir sex til tólf manns og jafnvel þó vikan sé dýr er það ódýr lausn ef margir leggja í púkk.
Helsti mínusinn er oftast nær, en ekki alltaf, sá að velflestar leiguíbúðir eru nokkuð frá miðborgarkjörnum eða ströndunum og því þarf bílaleigubíl í viðbót ætli fólk sér annað en hanga heimavið. Bílaleigubílar eru þó ódýrir á Spáni og vikuleiga á lítilli dollu ætti ekki að kosta meira en 20 til 30 þúsund fyrir vikuna.
Það er þó kostnaður sem fólk getur oft sleppt sé gist á hóteli. Lauslegur samanburður leiðir í ljós að vika á góðum hótelum miðsvæðis eða við ströndina á annatíma í Alicante og nágrenni fást alveg niður í 45 þúsund krónur eins og hægt er að sjá á meðfylgjandi leitarvél. Það getur verið lægra verð en greiða þarf á viku fyrir litla íbúð.







