Klukkan tólf á slaginu hóf Icelandair að selja flugmiða á tilboðsverði og gilda tilboð flugfélagsins til hádegis á morgun eða meðan til eru sæti.
Um sjö borgir eru þannig í boði á lægra verði en almennt gerist og ferðatíminn frá miðjum maí og fram í miðjan júní. Borgirnar sem um ræðir eru Stokkhólmur, París, Brussel, Billund, Gautaborg, Halifax og Genf.
Þjóðráð að nota slík tilboð til að ferðast enn lengra út í heim en að frátalinni Halifax eru lággjaldaflugfélög að fljúga frá öllum þessum borgum þó í mismiklum mæli sé. Nýverið fjölluðum við um kosti þess að fljúga til Billund eins og sjá má hér. Völlurinn lítill og þægilegur og stutt að fara þurfi að eyða smá tíma.
Í Stokkhólmi er ágætt að vera og þann 6. júní halda Svíar upp á þjóðhátíðardag sinn með pompi og prakt.
Í Halifax er hin aldna Black Sabbath með tónleika og ekki þarf mörgum orðum að fara um úrval viðburða í París eða Brussel í byrjun sumar.
Ekki skemmir heldur að geta leitað að allra ódýrustu gistingu sem völ er á hér að neðan og byrja sumarið með stæl.








