Svona áður en þú hleypur til af spenningi og bókar flugmiða til New York með Icelandair næsta sumar er óvitlaust að hinkra við og lesa sér til um hvað bandaríska flugfélagið Delta er að bjóða sömu leiðina. Í ljós kemur að þeir bjóða lægra verð í júlí og ágúst.
Við bárum saman allra lægsta verð sem finnast milli Keflavíkur og New York og heim aftur hjá báðum flugfélögum sem eru þau einu sem bjóða beint flug á milli næsta sumarið.
Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu skiptist þetta nokkuð bróðulega á milli. Icelandair býður töluvert lægra verð í júní en Delta aftur á móti mun lægri í júlí og bandaríska flugfélagið er að bjóða aðeins lægra verð í ágúst. Munurinn þó engin ósköp.
Hér skal hafa í huga að ekkert mat er lagt á annað en verð sem voru kórrétt kl. 14:30 þann 25. febrúar 2014. Sem fyrr gerast verðbreytingar hratt hjá báðum svo ekki er endilega víst að þú finnir nákvæmlega sömu verð við leit.








