Klappa verður flugfélaginu Wow Air lof í lófa og það duglega fyrir góða byrjun á nýju ári ef marka má þá viðskiptavini sem gefa sér tíma til að gefa flugfélaginu einkunn fyrir þjónustu að flugi loknu. Flugfélagið er að dúxa ef svo má að orði komast.
Þeir eru ýmsir til vefirnir sem gefa almenningi kost á því að gefa einkunnir um hitt og þetta undir sólinni en fremstur jafningja í flugbransanum er einkunnavefur Skytrax.
Þó ekki sé neinn stórkostlegur fjöldi sem þar leggur inn orð til handa íslensku flugfélögunum finnur Fararheill ekkert flugfélag sem er að fá jafn góðar einkunnir á nýju ári og Wow Air. Meðaleinkunnin er 9,5 af tíu mögulegum.
Auðvelt væri að gefa skít í það sökum þess hve fáir hafa þar lagt orð í belg en það gefur þó skýrar vísbendingar því öllu jöfnu er fólk fljótara til að skrifa neikvæðar umsagnir en jákvæðar.
Að sama skapi er Icelandair ekki að bæta sitt ráð. Síðastliðin tvö ár hefur meðaleinkunn þess flugfélags lækkað úr 7.5 í 5.0 og fáir eru hrifnir það sem af er árinu 2014. Gleymist kannski hjá fulltrúum þess að kapp er best með forsjá.








