Fljúgðu til Berlínar í mars, apríl eða maí frá 12.900 krónum auglýsir Wow Air þennan daginn og gildir tilboð þetta í sólarhring. Vandinn bara að finna það.
Tilboð þetta hljómar ágætlega fyrir utan að raunverð á fluginu er 13.895 því Wow tiltekur aldrei það verð sem viðskiptavinurinn þarf að greiða að fullu til að komast um borð. Auglýst verð líka fyrir utan farangur annan en handfarangur.
Verra þó hversu lítið er af þessum auglýstu fargjöldum á lágmarksverði en til þess að sjá það er viðskiptavinum gert að leita á þriggja mánaða tímabili á mjög lamaðri leitarvél flugfélagsins þar sem aðeins finnst einn og einn dagur í einu. Mun þetta vera eina „lággjaldaflugfélagið“ sem ekki býður fólki að sjá lægstu fargjöld á handhægan hátt okkur vitandi.
En Fararheill til bjargar svo þú þurfir ekki að eyða tíma þínum í vitleysu. Þegar þetta er skrifað kl. 10.40 þann 20. febrúar 2014 finnst lágmarksverð aðeins á einni dagsetningu í mars, þann 18. mars, aðeins tveimur dagsetningum í apríl, þann sjötta og áttunda apríl og á fjórum dagsetningum í maí, áttunda, þrettánda, tuttugasta og tuttugasta og sjötta maí.








