Þó Icelandair hafi fyrir nokkru hætt öllu flugi til Berlínar er ekki þar með sagt að Wow Air sitji eitt um hituna á þeirri leið næsta sumar. Á milli fljúga einnig tvö þýsk flugfélög og bæði eru þau almennt að bjóða betur en Wow Air.

Það er samkeppni á flugleiðinni til Berlínar næsta sumar gott fólk.

Það er samkeppni á flugleiðinni til Berlínar næsta sumar gott fólk.

Það vill fjandi oft gleymast að Ísland er vinsæll áfangastaður og allnokkur fjöldi flugfélaga flýgur hingað yfir sumartímann. Lítið fer þó fyrir þeim enda auglýsa þau fæst hérlendis.

En það er snjallráð að hafa það bakvið eyra hafi fólk áhuga að spara sér peninga og ferðast á sem ódýrastan hátt. Úttekt Fararheill sýnir að Wow Air er eftirbátur beggja sumarmánuðina þrjá.

Við leituðum að allra lægsta fargjaldi aðra leið fyrir einn einstakling frá Keflavík til Berlínar í júní, júlí og ágúst hjá flugfélögunum Germanwings, AirBerlin og Wow Air með öllum sköttum, gjöldum og einni tösku með. Niðurstaðan er afgerandi þýsku flugfélögunum í hag eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.

Sem fyrr skal hafa í huga að verðbreytingar eru örar hjá flugfélögum en öll verð kórrétt kl. 12 á hádegi þann 20. febrúar 2014. Í tilfellum þýsku flugfélaganna er verð fært yfir í krónur miðað við miðgengi dagsins sem einnig tekur örum breytingum. Engu að síður er samanburður gróflega réttur en ekki er tekið tillit til neins annars en verðs.