Rétt rúmlega 300 hótel eru alls í Bodrum í Tyrklandi. Engu að síður kjósa samkeppnisaðilarnir Heimsferðir og Vita ferðir að bjóða nákvæmlega sama hótel á staðnum og fljúga þangað með nákvæmlega sömu vélum í utanlandsferð sem báðir aðilar bjóða. Engu að síður mælist nokkur verðmunur þeirra á milli.
Tyrklandsferðir eru mjög inn þessa dagana og má kannski þakka það tilkomu Nazar á íslenska markaðinn þó vissulega hafi ferðir þangað verið í boði annars lagið hin síðari ári.
Bæði Heimsferðir og Vita eru að bjóða ferðir til Bodrum í sumar og svo vill til að þar er boðið upp á nákvæmlega sama hótelið, nákvæmlega sama „allt innifalið“ pakkann á nákvæmlega sömu herbergjum og flogið til og frá með sömu vélum. Þrátt fyrir það mælist rúmlega 35 þúsund króna verðmunur Heimsferðum í vil miðað við fjögurra manna fjölskyldu, hjón með tvö börn undir tólf ára aldri.
Gist er tvær vikur í júní frá 12. til 26. júní á hinu ágæta fimm stjörnu Voyage Torba í fjölskylduherbergjum og flogið út með Corendon og heim aftur með Primera Air. Rútur til og frá flugvelli eru innifalin í verði beggja. Þessa ferð er Heimsferðir að bjóða fyrir alls 1.034.800 krónur. Vita hins vegar smyr heldur duglegar ofan á pakkann og heimtar 1.070.360 krónur fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Munurinn er 35.560 krónur sem auðvitað er enginn hellingur en peningur samt og það í raun fyrir ekki neitt aukalega umfram það sem Heimsferðir bjóða.










