Fjórtándi febrúar og þú glórulaus í London. Hvernig kemurðu kærustunni á óvart og kveikir rómantískan neista án þess að bjóða upp á eitthvað hefðbundið og glatað eins og hjartalaga konfekt?

Faðmlag, kampavín og magnað útsýni. Það eru verri leiðir til að koma elskunni á óvart. Mynd Duncan WJ Palmer

Faðmlag, kampavín og magnað útsýni. Það eru verri leiðir til að koma elskunni á óvart. Mynd Duncan WJ Palmer

Fjölmargt er hægt að gera en ritstjórn Fararheill er æði spennt fyrir lyftuferð upp á 69 hæð í glerturninum Shard í London. Þar er búið að koma fyrir sérstökum Valentínusarkampavínsbar og glas plús óendanlega frábært útsýni kostar manninn aðeins 2.900 krónur eða svo.

Kannski ekki frábær hugmynd ef betri helmingurinn er lofthrædd eða lofthræddur en fyrir aðra eru til vitlausari aðferðir til að njóta þessa dags. Turninn er opinn lengur en venjulega eða til miðnættis.

Heimasíðan hér.