Það er ekki langt síðan Fararheill klappaði Úrval Útsýn lof í lófa þegar ferðaskrifstofan bauð flug, gistingu og miða á seinni úrslitaleik Íslands gegn Króatíu í fótbolta á mun lægra verði en Icelandair sem einnig bauð slíka ferð. Núna tekst ferðaskrifstofan aftur á við flugfélagið en þarf að lúta í parket.
Hvort forsvarsmenn Icelandair hafi lært lexíu eða menn hjá Úrval Útsýn orðið gráðugri skal ósagt látið. Í öllu falli er betri kostur að kaupa pakka Icelandair á EM í handbolta sem fer að hefjast í Danmörku en pakka Úrval Útsýn.
Þannig er ÚÚ að bjóða tveggja daga pakka; flugið, miða á tvo leiki og gistingu á Chagall með morgunverði á 109.900 krónur. Svipaður pakki gegnum Icelandair á sama hóteli í tvo daga en miðar á fjóra leiki fæst á 107.600 krónur.
Sé litið til þess að B-miðar á sæmilegum stað í höllinni kosta tæpar sjö þúsund krónur eru því viðskiptavinir Icelandair að njóta allmiklu betri kjara en þeir sem kaupa ferð sína með Úrval Útsýn.
Svo er líka hægt að kaupa aðeins flugið út en bæði Úrval Útsýn og Icelandair bjóða flug plús miða. Úrval Útsýn á 79.900 og Icelandair á 74.900 og bóka hótel á hótelbókunarvél Fararheill hér að neðan. Þar finnum við sæmilega gistingu þegar þetta er ritað á 26 þúsund þessar tvær nætur. Þannig hægt að njóta EM fyrir rétt rúmar hundrað þúsund krónur og eyða sparnaðinum í einhverja vitleysu.








