Lengi hefur Fararheill dásamað flugleitarvefinn Dohop og það einfaldlega vegna þess að í ítrekuðum samanburði er þar yfirleitt að finna öll hagstæðustu fargjöldin. Menn þar enn að standa sig allvel en þó ekki alveg á tánum.
Það sést glögglega sé leitað að flugi til og frá Kaupmannahöfn á tilteknum dagsetningum næstu mánuðina.
Þar finnast jú, eins og sést hér að neðan, allra ódýrustu fargjöld báðar leiðir með Wow Air og Icelandair sem eru einu flugfélögin sem fljúga beint þarna á milli samkvæmt Dohop. Jafnframt ódýrustu fargjöldin með millilendingu í Osló með SAS og Norwegian.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd af vef Dohop er Wow Air til dæmis að bjóða besta verð á flugi 3. til 14. apríl. 26.316 krónur er barasta allgott verð báðar leiðir. Nema hér er einn hængur á. Það er ekki innifalið bókunargjald Wow Air. Raunverð á þessu flugi er því 27.311 krónur samkvæmt vef Wow Air. Samt er tekið fram á vef Dohop að verð sé með „öllum sköttum og gjöldum.“
Næsta fargjald fyrir ofan það ódýrasta er líka með Wow Air og kostar 30.216 krónur. Sömuleiðis hér vantar inn bókunargjaldið og verðið því hærra en Dohop gefur upp.
Allra verst er þó fyrir okkur neytendur að Wow Air er alls ekki að bjóða næstlægsta verðið á þessari dagsetningu. Það gerir flugfélagið Primera Air en eins og sjá má á skjámynd númer tvö fæst flug fram og aftur þessa sömu daga með þeim fyrir 30.076 krónur. Nema Dohop er greinilega ekki með samstarfssamning við Primera því við finnum það flugfélag hvergi við leit.
Fararheill ítrekar því enn og aftur nauðsyn þess að gera samanburð. Jafnvel líka á samanburðarvefjum eins og Dohop. Það er sáraeinfalt að gera hér.










