Reglulega berst inn um lúguna skeyti frá Wow Air um hin og þessi tilboðin sem flugfélagið býður. Slíkt yfirleitt merkt netklúbbi fyrirtækisins en í dag brá svo við að sendandinn er forstjórinn sjálfur.
Skúli Mogensen er þar að tilkynna um tvö ný flugtilboð Wow Air en jafnframt að senda viðskiptavinum jólakveðju og þakkir fyrir gott ár.
Árið 2013 er búið að vera viðburðaríkt ár hjá okkur hjá WOW air á öllum sviðum. Við höfum flogið með yfir 400.000 farþega á árinu, fengum flugrekstrarleyfið okkar afhent í október og tókum í notkun þrjár nýlegar Airbus A320 flugvélar. Við erum einnig stolt af því að vera stundvísasta flugfélagið á Íslandi og að sjálfsögðu vinnum við hörðum höndum að því að bjóða ávallt lægsta verðið til og frá Íslandi. Ég vil þakka ykkur sem flogið hafa með okkur kærlega fyrir að ferðast með WOW air á árinu og þar með tryggja virka samkeppni hér á landi með áframhaldandi lækkandi flugkostnaði. Aðra hlökkum við til að sjá um borð á nýju ári.
Að því gefnu að þarna sé Skúli sjálfur en ekki aðstoðarmenn hans eða blaðafulltrúi þá er þetta sniðugur leikur. Forstjórinn hefur áður sýnt vilja til að ganga á stundum í störf undirmanna og það er góður stjórnunarstíll því það gefur forstjóranum innsýn inn í hvað undirmenn þurfa að leggja sig fram. Það er góður forstjóri sem þekkir persónulega öll störf í fyrirtæki sínu.
En við þetta er samt eitt að athuga. Flugkostnaður hérlendis hefur alls ekki lækkað á árinu og því engan veginn hægt að tala um „áframhaldandi“ í því tilliti. Nema Skúli sé að meina að kostnaður hans fyrirtækis hafi lækkað. Þá vakna fleiri spurningar því það hefur ekki skilað sér í lægra verði til neytenda. Í öllu falli eðlilegt að færð séu rök fyrir slíkum fullyrðingum.
Tilboðin sem Wow Air býður eiga við um flug í janúar til London og Salzburg. Strípað fargjald til London fæst aðra leið á 15.800 og til Salzburg aðra leið á 19.800.








