Víða um veröldina og líklega í hverjum einasta bæ og borg má finna fólk sem fer yfir um á skreytingunum um jólin okkur öllum til gleði og ánægju enda þurfum við hin ekkert að greiða rafmagnsreikninginn sem kemur á endanum. En það er sjaldgæfara að öll nema eitt einbýlishús í sömu götu séu skreytt bókstaflega í hólf og gólf og ekkert til sparað.

Jólagatan í Hinnerup. Aðeins einn íbúðareigandi í allri götunni lét nægja að hengja jólaseríur innandyra.
Danska ríkissjónvarpið fann þó slíka götu í smábænum Hinnerup á Mið-Jótlandi ekki ýkja langt frá Árósum og birti um það fregn. Hvort það er tilviljun eður ei þá heitir gatan atarna því skemmtilega nafni Friðargata eða Fredensgade.
Hér er ekki verið að tala um að fólk sé að henda einni jólaseríu á næsta tré út í garði og látið gott heita. Öðru nær.
Hér eru mislitar seríur á öllu sem hægt er utan- og innandyra og bætt um betur með líkneskjum af jólasveinum og snjókörlum og ýmsu öðru jólalegu.
Flottur rúntur sé fólk að eyða jólum erlendis enda gæti verið að þetta sé jólagata Danmerkur númer eitt, tvö og þrjú. Tekið skal fram að meðfylgjandi skjámynd gerir þessu fremur skæm skil. Öllu litríkari gatan en hér sést.







