Stórir draumar um ævintýri og lífsfyllingu á ferðalögum en bankabókin tóm og vísað komið til Intrum? Ekki samt henda hvíta handklæðinu alveg strax.
Það er nefninlega raunin að það opnast stundum merkilegar dyr þegar öll sund virðast lokuð og það á einnig við um þá sem eiga þann draum að gera eitthvað ævintýralega á erlendri grundu en skortir fjármagn. Til sögunnar er nefninlega komin fjáröflunarleið fyrir slíka ofurhuga.
Um er að ræða vefmiðilinn Trevolta sem sérhæfir sig í fjöldafjármögnun, crowdfunding, og ætlaður er fólki sem vill stíga út úr þægindarammanum og upplifa spennandi hluti á ferðalögum. Á þeim vef skýrir fólk frá hugmyndum sínum og biðlar til annarra um styrk. Hugmyndin er að sé kynningin nógu spennandi sé hópur af fólki reiðubúið að styðja við bak ofurhugans.
Auðvitað þarf ekkert að reyna að fá styrk til að geta sleikt sólina á Benídorm en sé ferðahugmyndin framandi, ógnvænleg eða sérstök ætti að vera mögulegt að taka inn nokkra seðla og kannski nóg til að borga fyrir allt saman.
Skemmtilegt. Nánar hér.








