Þó nokkur fjöldi Íslendinga leggja leið sína árlega til Suður Afríku til að vitna fyrstu hendi dásemdir þess lands sem eru vissulega miklar. Og landið mun brátt eignast nýjan mjög fjölsóttan ferðamannastað. Þorpið Qunu.

Þorpið Qunu verður líklega afar fjölsóttur áfangastaður ferðamanna í framtíðinni

Þorpið Qunu verður líklega afar fjölsóttur áfangastaður ferðamanna í framtíðinni

Hvernig er hægt að fullyrða slíkt af pínulitlum vefmiðli norður í ballarhafi?

Jú, það er í Qunu þar sem Nelson Mandela fæddist, ólst upp, byggði sér villu og verður lagður til hinstu hvílu. Og eins og gerst hefur alls staðar annars staðar þar sem mikilmenni hvíla verða slíkir staðir samstundis aðdráttarafl.

Eins dauði er annars brauð og líklega mun hagur bæjarbúa Qunu vænkast töluvert á næstu árum því hingað til hafa aðeins allra hörðustu aðdáendur forsetans fyrrverandi lagt á sig ferð hingað. Eðlilega því Qunu er bara lítið þorp en státar þó af góðu safni tileinkuðu Mandela.

Þá verður íbúðarhús Mandela hér skammt frá væntanlega vinsælt meðal ferðalanga en hér eyddi Mandela hvað mestum tíma sínum eftir að hann hætti sem forseti landsins.