Ekki er mjög súrt að sleikja vetrarsólina á ströndum Portúgal stundarkorn í janúar, febrúar eða mars og það er nú hægt í eina þrjá daga fyrir þvílíkan spottprís að annað eins hefur ekki sést lengi eða undir 20 þúsund krónum á mann.

Gjafverð á ferð Broadway Travel til Algarve í vetur

Gjafverð á ferð Broadway Travel til Algarve í vetur

Breska ferðaskrifstofan Broadway Travel er að bjóða þennan snilldarprís á þriggja nátta ferðum til Algarve frá Bretlandi næstu mánuðina en fyrir tæpar tuttugu þúsund krónur fær fólk flug fram og aftur, gistingu á þriggja stjörnu hóteli og rúsínan í pylsuendanum er hálf fæði allan tímann.

Vissulega gildir verðið ekki frá Íslandinu en ef við skoðum eina dagsetninguna sem í boði er frá Gatwick og berum saman við flug út og heim héðan kemur í ljós að hægt er að fljúga út með Wow Air snemma 23. janúar og heim aftur seinnipart 26.janúar og ná þannig að nýta tilboð Broadway Travel.

Kostnaðurinn við ferðir Wow Air alls 30.439 krónur á mann plús 19.477 krónur til Algarve. Samtals kostnaður á mann 49.866 krónur alla leiðina. Parið kemst því þessa ferð undir hundrað þúsund krónum þrátt fyrir allt. Kannski langsótt fyrir svo skamman tíma en ekki gleyma að það er aldrei varið í neitt sem ekki þarf að hafa aðeins fyrir.

Nánar um tilboðið hér.

* Verð miðast við miðgengi þann 28.nóvember 2013