Gamlársdagur 2013 fer í sögubækur í Tívolíinu í Kaupmannahöfn. Forráðamenn hafa tekið þá ákvörðun fyrsta sinn í 170 ára sögu þessa fornfræga staðar að hafa opið á gamlársdag og fram eftir kvöldi.

Ekki leiðinlegra að eyða gamlársdegi í tívolíinu í Köben

Ekki leiðinlegra að eyða gamlársdegi í tívolíinu í Köben

Það er ekki tilviljun sem ræður því að tekin er slík ákvörðun heldur einungis sú staðreynd að í fyrra prófuðu menn að hafa Tívolígarðinn að hluta til opinn á þessum hátíðisdegi og það vakti rífandi lukku.

Nú skal setja djús á öll tækin og allan garðinn og því allt í gangi í Tívolíinu þann 31. desember næstkomandi.

Hann verður galopinn frá 11 um morguninn fram til klukkan 22 um kvöldið en hálftíma síðar býður Tívolíið upp á sína eigin litlu flugeldasýningu. Garðurinn og veitingastaðirnir verða þó opnir lengur.

Kjörinn staður fyrir rómantíska stund tvö saman eða húrrandi stuð með börnum og barnabörnum. Til mun verri staðir en Tívolíið til að eyða áramótakvöldi.