Það fer óheyrilega í taugarnar á Fararheilsfólki þegar eyða þarf mánuðum saman í flettingar á vefsíðum flugfélaganna Wow Air og Icelandair til að finna allra lægsta verð í boði á tiltekinni flugleið.
Við ítrekuðum kvörtun þessa efnis nýlega en þá höfðum við ekki tekið eftir að það er „næstum“ íslenskt flugfélag að koma allþokkalega fram við viðskiptavini sína. Og góðum hlutum ber að koma á framfæri.
Það er Primera Air hans Andra forkólfs Heimsferða sem stendur sig bærilega að þessu leyti.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er leikur einn að sjá á augabragði hvenær þeirra ódýrasta flug er í boði tvo til þrjá mánuði fram í tímann. Vissulega er úrvalið ekki stórkostlegt og kannski er það ástæða þess að þetta er hægt en engu að síður er þetta mikil framför frá því sem Icelandair og Wow Air bjóða okkur upp á.
Ekki fær Andri og fólkið hans neina toppeinkunn því enn þarf að fletta nokkuð til að sjá margra mánaða samanburð eins og flugfélög á borð við easyJet og Norwegian bjóða sannarlega upp á. En þetta er allmiklu betri þjónustu en innlendir samkeppnisaðilar eru að veita.








