Hvort sem það er sökum þess að Fararheill hraunaði yfir viðkomandi fyrirtæki fyrir skömmu eða einhvers annars hafa nú tíðindi orðið í flugsamkeppni. Tveir aðilar bjóða landanum ferðir til Zagreb í Króatíu á síðari umspilsleik landsliðsins í knattspyrnu um sæti á heimsmeistaramótinu og merkilegt nokk er stór munur á verði.
Þetta eru Úrval Útsýn annars vegar og Icelandair hins vegar eða þeir sömu og buðu Íslendingum far til Oslóar á síðasta leik landsliðsins í undankeppninni. Þá hristum við hjá Fararheill hausinn því báðir buðu NÁKVÆMLEGA sama verð í þá ferð.
Nú horfir öðruvísi við svo um munar. Icelandair býður reyndar tvenns konar pakka, einnar nátta ferð og þriggja nátta meðan Úrval Útsýn, sem að þessu sinni býður beint flug með Wow Air, býður aðeins upp á eina nótt. Verðmiði á einnar nátta ferð Icelandair er 115.900 miðað við tvo saman en Úrval Útsýn selur sams konar ferð á 89.900 miðað við tvo saman. Það er 26 þúsund króna munur.
Eini sjáanlegi munurinn á þessum ferðum er að ÚÚ flýgur liðinu út þann 18. nóvember og heim aftur strax að leik loknum meðan Icelandair fer út 19. og heim þann 20.
Prívat og persónulega mælir Fararheill með lengri ferð Icelandair því það er töluvert ódýrara að drekkja sorgum á torgum Zagreb en Reykjavíkur ef Ísland kemst ekki á HM og sömuleiðis töluvert meira um að vera og velja í Zagreb ef Ísland kemst á HM. Sennilega slæmur staður að vera í vél Wow á heimleiðinni ef landsliðið tryggir sig áfram. Fyrir utan þá staðreynd að Zagreb er fróðleg borg og Króatar eru almennt nokkuð hrifnir af Íslendingum samkvæmt reynslu Fararheill. Það gæti þó breyst ef við sláum landslið þeirra út.
Svo verður að spyrja hvers vegna hægt sé að bjóða ferðir alla leið til Zagreb með svo miklum verðmun en ekki mun styttri leið til Osló um daginn?








