Raúl Castro, bróðir einræðisherrans Fidels, virðist hafa vit í kolli og vilja til að láta gott af sér leiða ef marka má nýjustu fréttir frá eyjaskeggjum. Stjórnvöld hafa ákveðið að leggja af það tvöfalda peningakerfi sem verið hefur við lýði um áratugaskeið og fyllt fátækari íbúa illu blóði.

Sérstakur ferðamannagjaldeyrir verður ekki mikið lengur við lýði á Kúbu

Sérstakur ferðamannagjaldeyrir verður ekki mikið lengur við lýði á Kúbu

Eins og þeir vita sem til Kúbu hafa farið eru tveir gjaldmiðlar í gangi þar. Annars vegar CUP, kúbverski pesóinn sem allur þorri fólks fær greidd laun í, og hins vegar CUC, sem er sami pesó en tengdur bandarískum dollar og hefur verið eini gjaldmiðillinn sem erlent ferðafólk hefur mátt nota í landinu.

Það sem farið hefur fyrir brjóst þorra þegna landsins, skiljanlega, er að verðmæti CUC hefur ætíð verið töluvert meira en verðmæti hins almenna pesós. Sök sér að erlendir ferðamenn noti þann gjaldmiðil og geti ekki annað en öllu verra hefur þótt að kúbverskir starfsmenn í ferðaþjónustu hafa einnig margir fengið greitt í hinum „útlenska“ gjaldeyri og notið þess umfram aðra.

En ekki lengur. Að því er greint var frá í ríkisblaðinu Granma í gær hafa stjórnvöld hafið vinnu við að breyta þessu og gera menn ráð fyrir að eftir rúmt ár eða svo verði aðeins einn gjaldmiðill á Kúbu.

Þetta eru góðar fréttir fyrir alla. Heimamenn verða sáttari, spilling minnkar væntanlega og ferðamenn til eyjunnar fögru þurfi eigi lengur að standa lon og don í bönkum á flugvöllum til að fá rétta mynt. Eftirleiðis nægir að fara í næsta banka í grenndinni til að skipta peningum að því er greinir í Diario Granma.