Undarlegt ómerkt bréf fylgdi Morgunblaði sumra landsmanna þennan laugardagsmorgunn. Í því var nýtt tilboð norsku ferðskrifstofunnar Oska-Travel sem vaknað hefur til lífsins eftir hlé.

Aftur sértilboð til Tyrklands með Oska-Travel í boði héðan

Aftur sértilboð til Tyrklands með Oska-Travel í boði héðan

Ár er síðan fyrst birtust auglýsingar frá fyrirtækinu þar sem það bauð fantaverð á sólarlandaferð til Tyrklands. Fantaverð að minnsta kosti samanborið við það sem Íslendingum bauðst hér innanlands fram að því.

Nú er sama uppi á teningnum. Átta daga baðferð heitir ferðin sem nú býðst en ritstjórn Fararheill allavega óar við þeirri hugmynd að eyða þeim tíma í baði jafnvel þó um sé að ræða „lúxushótel“ eins og fram kemur í bæklingi Oska-Travel. Ferðinni er haldið til Antalya í Tyrklandi og verð á mann 79.900 krónur með sérstökum afsláttarkóða.

Verðið gott sem fyrr og eins og við höfum greint frá er þetta sæmilega vinsælt fyrirtæki þó við reyndar heyrðum tvennar sögur af ferð þeirra síðasta haust og í vor sem leið. Gæta skal þess samt að færa inn afsláttarkóða við bókun því annars kostar umrædd ferð 116.311 krónur að því er fram kemur á vef þeirra. Kóðinn sem um ræðir er ISBA502.