Fararheill var fyrir stuttu að fá í pósthólfið sitt skeyti frá Úrval Útsýn. Ferðaskrifstofan býður þar dagsferð á landsleik Noregs og Íslands á þriðjudaginn kemur fyrir 79.900 krónur. Óvitlaus hugmynd enda mikið undir hjá landsliðinu okkar. Verst bara að Icelandair var töluvert á undan með sama pakka á nákvæmlega sama verði.
Það er gott og blessað og eðlilegt að bjóða í einum grænum sértilboð á Ulleval leikvanginn í Noregi þar sem í ljós mun koma á þriðjudagskvöld hvort íslenska landsliðið kemst í umspilsleik fyrir heimsmeistarakeppnina í Brasilíu á næsta ári eða hvort landslið Slóveníu nær þeim árangri.
En nákvæmlega sama verð á ferð er undarlegt. Í þokkabót er flogið með Icelandair svo hvatinn til að kaupa ferðina hjá Úrval Útsýn er enginn. Það er meiri samkeppni milli innlendra bensínstöðva en þetta.
Tilboð Úrval Útsýn
Tilboð Icelandair








