Þó færst hafi það til mun betri vegar undanfarin ár getur enn verið þreytandi helvíti að finna trausta leigusala erlendis sem bjóða hyttur og hús á öðrum slóðum en þeim allra vinsælustu.
Hvað til dæmist langi fólk til að leigja hyttu í Noregi og skíða út í eitt. Hvert þá og er þeim treystandi?
Nú rekur ritstjórn Fararheill augun í að þeir sem standa að baki leigumiðlunarvefnum bungalo.is sem sérhæfir sig í að koma á framfæri sumarhúsum í útleigu eru farnir að bjóða slíkan kost í Svíþjóð líka.
Reyndar fundum við aðeins tvö tilboð við leit á vefnum en góðir hlutir gerast hægt og fín hugmynd fyrir fólk sem vill prófa sænska sveitasælu eða merkja við síðu þeirra og líta við annars lagið.








