Kæri fólk sig um að komast til Spánar næsta sumar á verði sem ekki sprengir bankann í tætlur er ekki seinna vænna að drífa sig og bóka. Ódýrustu sætin hjá þeim þremur flugfélögum sem fljúga þá milli Reykjavíkur og Barcelóna eru að klárast og það hratt.

Ekki seinna vænna að bóka far til Barcelóna næsta sumar

Ekki seinna vænna að bóka far til Barcelóna næsta sumar

Við fyrstu sýn í samanburði milli Wow Air, Vueling og Icelandair sem öll bjóða flug milli þessa leið næsta sumar virðist Icelandair vera í algjöru tjóni. Tjóni í þeirri merkingu að þar finnst varla flug til og frá undir hundrað þúsund krónum í maí og júní. Hundrað þúsund króna kostnaður við flug til Spánar er út úr korti hjá þjóð hvers meðallaun eru milli þrjú og fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði samkvæmt opinberum tölum. Og þá aðeins hjá þeim sem hafa vinnu.

En nenni fólk að leita þá, þegar þetta er skrifað, detta inn fargjöld í júlí þar sem bóka má sömu ferðir fyrir 52.900 krónur.

Það er ekki ódýrt en miðað við að farangur og gjöld öll eru innifalin í verði flugfélagsins er það æði gott og reyndar mun betra verð en lægstu fargjöld sem við finnum þessa leið með Wow Air.

Wow er að bjóða flugið til og frá lægst nú á 49.489 krónur en þar er taxtinn strípaður og gjöld og farangur ekki innifalinn. Enginn ferðalangur er að þvælast töskulaus til Barcelóna mikið að okkar mati og með því að bæta við kostnaði við eina tösku fram og aftur eru ferðir Wow dýrari en það lægsta sem Icelandair býður.

Sé eingöngu miðað við strípaðan taxta, eitt stykki flugsæti til og frá og búið, er Wow er heldur ekki ódýrast á þessari flugleið. Það er spænska flugfélagið Vueling með vinninginn þar en þó æði margt sé uppselt þá finnur Fararheill samt flug til og frá niður í 43.101 krónu eða tæplega sjö þúsund krónum ódýrara en Wow Air býður best.

Einu gildir þó hvaða flugfélag um ræðir, greinilegt er að góð eftirspurn er eftir ferðum nú þegar og sæti seljast eins og heitar lummur og gott betur. Hafa þarf hraðann á hér.

* Verð öll rétt samkvæmt miðgengi dagsins kl. 19 þann 8. október 2013. Hafa skal í huga að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru afar örar.