Fararheill fær reglulega póst frá lesendum þar sem óskað er eftir að við bendum á ferðir sem sérstakar þykja og ekki er hægt að verða sér úti um hér á Íslandi. Okkur datt því í hug að senda þessar fjórar á ykkur.

Perhentiaeyjur þekkja ekki margir en þær eru toppurinn sé hugmyndin að slaka á.

Perhentiaeyjur þekkja ekki margir en þær eru toppurinn sé hugmyndin að slaka á.

Hér er um að ræða fjórar ferðir sem eru kannski ekki endilega á einstöku verði en eru að öðru leyti sérstakar annaðhvort fyrir fjölbreytni eða áfangastaði nema hvort tveggja sé.

  • Kuala Lumpur / Perhentía

Tveggja vikna ferð í boði með dönsku ferðaskrifstofunni Top Tours. Flogið frá Köben með stærstu farþegaflugvél heims, A380, til Dúbaí þar sem fólk skiptir um vél og heldur rakleiðis áfram til höfuðborgar Malasíu, Kuala Lumpur, og dvalir þrjár nætur í þeirri merkilegu borg. Þá er flugið tekið til Kotha Bahru á austurströnd landsins áður en bátur flytur fólk á aðra af tveimur eyjum sem kallast Perhentía. Hugsið ykkur Phuket áður en sá varð fórnarlamb fjöldatúrisma. Ferðir í boði fram til mars 2014 og verð á mann miðað við tvo saman 264 þúsund krónur.

  • Cancún

Fólk þegar orðið vel þreytt á veðrinu og vill bara burt? Hvernig hljómar sólarströnd í Cancún í Mexíkó með öllu inniföldu á svipuðu verði og hefðbundin ferð til Benídorm? Það er í boði næstu fimm daga gegnum Lastminute.com en flogið er í beinu flugi frá London með Thomas Cook. Þar er fimm stjörnu hótel á besta stað í boði í vikutíma en hótel þetta er stórt og mikið og bæði verslunar- og afþreyingarmöguleikar margir. Vænlegast er þó verðið sem er aðeins 137 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

  • Máritíus

Hvað Evrópubúa varðar er almennt ekki mikið dýrari staðir heimsóknar en eyjan Máritíus á Indlandshafi. Þar eru vart í boði önnur hótel en fimm stjörnu og það tiltölulega fá svo verðlag er jafnan afar hátt. Enn síður er algengt að þangað séu í boði allt-innifalið ferðir en það býður Emirates Holidays þessa stundina. Þessar vikulöngu ferðir í boði í nóvember, byrjun desember og aðeins fram eftir næsta ári. Eingöngu í boði fyrir hjón eða par og verð á mann 242 þúsund krónur og hvort sem fólk trúir því eða ekki þá er það gjafverð á þessar slóðir.

  • Tóbago

Tóbagó er systureyja Trinidad í Karíbahafinu og þótt hvergi á eyjum þess þurfi lengi að leita að fjöri eru það að öðrum ólöstuðum íbúar hér sem láta sér lífið hvað léttast í rúmi. Að sama skapi er eyjan lítil og aldrei hitastækja sökum þess. Nú er FlightCentre að bjóða sjö daga ferðir hingað á miðlungshótel með engu inniföldu en á móti kemur að ferðin fæst fyrir 126 þúsund krónur á mann miðað við tvo frá London. Aðeins ein ferð eftir þegar þetta er skrifað næsta desember.


View Staðirnir in a larger map