Nei, sko Wow Air. Eftir ítrekaðar ábendingar Fararheill færir ferðaskrifstofan mál sín loks til aðeins betri vegar. Nú þurfa áhugasamir ekki að eyða áratugum að leita að ódýrasta flugi lengur.
Vefur Wow Air lá niðri um nokkurra klukkustunda skeið í gærkvöldi vegna uppfærslu og í nótt birtist svo nýr og breyttur vefur þeirra.
Óhætt er að óska fyrirtækinu til lukku með það og ekki síður neytendum því nú er loks hægt, eins og hjá velflestum alvöru ferðaþjónustufyrirtækjum, að sjá á augabragði allra ódýrustu fargjöldin án þess að eyða tíma til. Þið vitið, þetta sem kallast ÞJÓNUSTA. Svona eins og hægt er hjá easyJet, Norwegian, Vueling, Ryanair, Transavia og fleiri þekktum lágfargjaldaflugfélögum.
Wow gengur þó ekki nógu langt því aðeins er hægt að sjá ódýrustu fargjöld rúma viku eða tvær fram í tímann og ekki til allra áfangastaða. Enn verður fólk að eyða tíma til leitar vilji það finna ódýrasta fargjaldið til Alicante í apríl eða Amsterdam um jólin.
Lágfargjaldafélag?
Kannski eitt enn fyrst við erum með gagnrýnisgleraugun á okkur. Miðað við að fyrstu ferðir Wow Air til Alicante í apríl á næsta ári og heim aftur kosta þegar þetta er skrifað rúmlega 80 þúsund krónur og enginn farangur innifalinn má orðið mjög deila um hvort þetta fyrirtæki geti kallað sig lágfargjaldaflugfélag. Er það ekki svipað og Hagkaup kalli sig lágvöruverðsverslun?










