Lísa heitir stúlka sem er ein þeirra sem reglulega skrifar efni á Fararheill.is. Eins og aðrir í ritstjórn er hún æði séð og sigld í ferðabransanum og þar sem við fáum reglulega skeyti þar sem kvartað er yfir of litlum upplýsingum um hvernig njóta á lífsins erlendis á sem allra ódýrasta hátt datt okkur í hug að segja þér hvernig Lísa og fjölskylda ætla að eyða dimmasta skammdeginu og jafnframt erilsamasta tíma ársins og það í tómum rólegheitum í ágætum hita fyrir lágmarksverð.
Lísa þolir illa jólin og man ekki til þess að hafa nokkurn tíma slappað af þann tíma þó heita eigi að það sé hátíð ljóss og friðar. Hún hefur alls sex sinnum dvalist erlendis yfir jólahátíðina og ætlar að gera það í sjöunda skiptið nú. Hér er skref-fyrir-skref leiðarvísir hvernig hún fann allgott frí á allgóðu verði.
A) Hún, maki hennar og eitt barn keyptu í síðustu viku far gegnum Travellink frá Reykjavík til Osló þann 10.desember og heim aftur frá Osló þann 12. janúar. Hægt er að finna ódýrustu fargjöldin þessa leiðina vel fram í tímann tiltölulega örugglega með leitarvélum á borð við Dohop, Momondo eða Skyscanner. Verð á mann báðar leiðir 21.778 krónur eða
Fjölskyldan lendir seint um kvöld og er svo heppin að þekkja fólk í Osló sem sækir á flugvöllinn og leyfir þeim að gista svo ekki kemur til þess að greiða þurfi fyrir nótt í Osló.
B) Daginn eftir er brunað á Gardermoen flugvöll og umsvifalaust flogið með Norwegian beint til Malaga á Spáni þar sem hitastig í desembermánuði rokkar milli átta og fimmtán stig yfir daginn og ferðamenn eru fáséðir og því eins auðvelt og það verður að ná í góðan díl eins og það er oft kallað. Lísa er reyndar vön að flakka milli hótela þennan tíma til að finna sértilboð um jólin en nú ætlar hún að leigja sér villu og helst ekki of langt frá sjó. Ekki svo að skilja að hún stundi sjósund mikið í desember heldur er það raunin að mesta lífið í öllum strandbæjum í Andalúsíu á Spáni er ávallt í eða við strandgötuna.
Í öllu falli fær hún og fjölskyldan far með Norwegian beint til Malaga þann 11. desember og aftur til Osló þann 11. janúar fyrirtæplega 61 þúsund krónur fyrir allan mannskapinn eins og sjá má hér að neðan. Þau eru reyndar með tvær stórar töskur og sá kostnaður bætist við og heildarfargjaldið til Malaga því 68 þúsund krónur.

Tiltölulega ódýrt að fljúga með Norwegian og í þessu tilfelli var hægt að finna enn ódýrari fargjöld til Malaga.
Ferðalagið til Malaga á Spáni hefur því kostað þessa litlu þriggja manna fjölskyldu alls 134.695 krónur miðað við miðgengi dags þann 7. ágúst síðastliðinn. Til samanburðar gefur hér að neðan að líta bestu fargjöld í boði bóki fólk ferð til Barcelóna með Icelandair og millilendi í London áður en áfram er haldið en í því tilfelli er takmarkað magn farangurs innifalið í verðinu.

Bestu verð Icelandair eru óravíddum fjarri því verði sem Lísa og fjölskyldan hafa tryggt sér með öðrum eins og sjá má.
Með tilliti til að Icelandair gefur upp rúmlega 301 þúsund króna kostnað við ferð til Spánar umrædda daga í desember og janúar hefur þriggja manna fjölskyldan þegar sparað sér rúmar 167 þúsund krónur og eru samt að greiða aukalega fyrir farangur. Galinn munur.
C) Lísa hefur legið yfir íbúðaskiptasíðum í um tveggja mánaða skeið vitandi að aldrei er ferðast með ódýrari hætti en skiptast á íbúðum eða húsnæði og því fyrr því betra. Því miður fannst enginn eigandi villu kringum Malaga sem vildi íbúðaskipti í desember og því verða ungu hjónin að greiða fyrir villu sína með beinhörðum peningum.
Á vefnum ThinkSpain.com fann hún sveitavillu í litlu þorpi í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Malaga fyrir 60 þúsund krónur á mánuði. Vissulega enginn lúxus enda voru hjónin ekki að leita að neinum lúxus heldur einhverjum stað til að kalla heimili og geta valsað um án lopafatnaðar þegar hitastigið heima er við núll gráðurnar.
Auðvitað kostar líka að lifa og ævintúrast en þar sem þau urðu sér úti um mánaðarlanga dvöl á fínum stað á suðuströnd Spánar þegar herra Kári Frostason bankar á allar dyr heima eins og óður maður fyrir tæpar 200 þúsund krónur er enn eftir slatti af peningum til að eyða í tóma vitleysu ef svo hentar.
Ritstjórn hefur þegar hjálpað hundruðum ferðalanga að skoða heiminn án þess að setja sig á hausinn. Hafðu samband og við hjálpum sé þess kostur.








