Við héldum að við værum alveg laus við lús í hári en það breyttist í dag þegar nokkrar duttu dauðar niður við að reka augun í allsæmilegt tilboð frá Flugfélagi Íslands til Færeyja.

Já, seint koma sumir en koma þó og nú er hægt að bóka flug fram og aftur til Þórshafnar fyrir 29.900 krónur og verður að klappa Flugfélaginu aðeins á bakið fyrir það jafnvel þó flugið sé í samstarfi við færeyska flugfélagið Atlantic Airways.

Fararheill hefur lengi bent á þann dónaskap Íslendinga að ferðast ekki í massavís til Færeyja. Þangað er stutt að fara, frábært að vera, stórkostlegt að skoða og við erum svo ótrúlega velkomin að hvergi á byggðu bóli fá Íslendingar eins góðar viðtökur. Hverjir voru jú aftur fljótastir til hjálpar þegar allt fór í handaskolum í „svokölluðu“ hruni 2008?

Nú er 29.900 krónur ekki merkilegt verð í samanburði við ýmsar ferðir stóru flugfélaganna og hægt að fljúga ívið lengra en til Færeyja fyrir sama pening. Sömuleiðis passa menn sig á að henda aðeins tilboðum á dagsetningum eftir að hinni stórskemmtilegu Ólavsvöku lýkur en færeysku eyjurnar engu að síður sannarlega heimsóknar virði.

Heimasíða flugfélagsins hér og hér finnurðu vegvísi Fararheill til Þórshafnar. Svo er hér líka eðalgrein til að kynda undir áhugann.