Breska flugfélagið easyJet mun breyta reglum sínum um farangur farþega frá og með næsta júlí en þá gætu farþegar með fyrirferðamikinn farangur þurft að horfa á eftir tösku sinni niður í geymslu í farangursrými vélarinnar.
Áfram mega farþegar easyJet fara með töskur sínar um borð eins og verið hefur svo lengi sem þær falla undir þau stærðar- og þyngdarmörk sem verið hefur. En eftirleiðis verður það flugþjóna að ákveða hvort færa þurfi farangur úr farþegarými ef svo ber undir að illa gengur að koma öllu fyrir í skápum í farþegarými.
Frá því að flugfélög hófu að taka sérstök gjöld fyrir innritaðan farangur fjölgar þeim sem reyna að troða öllu í handfarangur sinn sem aftur hefur valdið því að þær eru úttroðnari en ella. Farangurshólf velflestra flugfélaga hafa ekki nægt pláss ef allir um borð mæta með allra stærstu tösku sem hægt er og það er ástæða þessara breytinga hjá easyJet.
Það er því ráð að ferðast EKKI með leyfða hámarksstærð eða troða töskuna eins og hægt er vilji fólk forðast að sjá eftir handfarangri sínum fyrirvaralaust.







