Fokið er í flest skjól fyrir þá sem ekki voru búnir að panta og skipuleggja utanlandsferðir sínar strax í vetur eða snemma í vor og veðjuðu á gott og sólríkt íslenskt sumar.
Ekkert bólar á því, maímánuður á enda kominn og ekki er spáin næstu daga og vikur að fara að fylla neinn æsingi nema ef vera skyldi garðyrkjumenn.
Þá er kannski ráð að láta bara slag standa og renna í hvelli yfir þau sjö tilboð sem ferðaskrifstofan Heimsferðir er með í boði þegar þetta er skrifað. Það er ein fárra ferðaskrifstofa hérlendis sem setja ferðir á sértilboð þegar lítið selst og þá deila megi um afsláttarkjörin þá er það til eftirbreytni.
Á tilboðsvef ferðaskrifstofunnar nú eru ein sjö tilboð og hafa sjaldan verið fleiri. Bæði er þar um að ræða flug á tilboðsverði en einnig heilu sumarferðirnar til Almería, Benidorm og Alicante. Tíminn er núna ætli fólk að fá eitthvað bitastætt á heilbrigðu verði þetta sumarið.







