Staðfest var í sérstakri afmælisveislu fyrirtækisins Wow Air nú fyrr í kvöld að gert væri ráð fyrir að hefja flug til Bandaríkjanna í maí á næsta ári. Forstjórinn, Skúli Mogensen, staðfesti einnig að annar tveggja áfangastaða félagsins til að byrja með yrði New York.
Þetta er príma mál í alla staði enda skortur á samkeppni til þessarar eilíflega vinsælu stórborgar Bandaríkjanna. Þangað flýgur nú Icelandair og hefur gert lengi sem og Delta Airlines og ritstjórn Fararheill hefur haft spurnir af því að hjá bandaríska flugfélaginu sé mikil ánægja með sölu sæta til Íslands.
Ekkert var gefið upp um hinn áfangastaðinn en heita má líklegt að þar sé um Boston að ræða eða kannski mögulega Orlando en á þessa tvo staði er aðeins komist með Icelandair eins og sakir standa.
Fararheill óskar Wow Air til hamingju með fyrsta árið sem jafnan er hið erfiðasta hjá glænýjum flugfélögum.








