View Hvað vantar þig að vita um ferðalög um Spán og Portúgal in a larger map

Við erum reyndar bara rétt að byrja en ef vera skyldi að þig langaði að fræðast meira um stöku borgir, bæi og þorp á Íberíuskaganum, Kanarí- eða Balearic eyjum nú eða Madeira getum við sennilega hjálpað lítið eitt.

Ritstjórn Fararheill hefur farið um Spán allan og mestan hluta Portúgal undanfarin ár og smátt og smátt færum við reynslu okkar til bókar á íslensku og á mannamáli með öllum helstu upplýsingum um söfn, sjónarspil, verslun og samgöngur á hverjum stað fyrir sig.

Ólíkt yfirborðskenndum froðulýsingum íslenskra ferðaskrifstofa sem hafa það eitt markmið að fá þig til að kaupa ferðir hefur Fararheill enga hagsmuni til eða frá. Við lýsum hlutunum eins og þeir koma fyrir.

Á meðfylgjandi korti eru þeir staðir sem við höfum náð að dekka hingað til á Spáni og Portúgal. Allir vegvísarnir eru uppfærðir nokkuð reglulega og verð miðast öll við krónu gagnvart evru eftir hrunið og eru því marktækar þó munað geti krónum til eða frá daga á milli vegna rokkandi krónunnar okkar.

Við vonum að þú njótir gagns af og óhrædd að koma með ábendingar eða leiðréttingar ef við förum villur vega.