Wow Air býður nú tímabundið til miðnættis í kvöld flug aðra leið til Kaupmannahafnar á 14.800 krónur með bókunargjaldi en án farangurs. Tilboðið er sagt gilda 15. nóvember til 16. desember og aftur frá 9. janúar til 15. mars.
Það er ekki alls kostar rétt með farið samkvæmt úttekt Fararheill. Þetta fargjald er í boði nákvæmlega 16., 19., 23., 26. og 30. nóvember og svo ekki aftur fyrr en þann 9. janúar.
Engin flug finnast í desember á þessu fargjaldi.
Hins vegar er skondið að næstu daga eftir að þessu tilboðinu lýkur þann 15. mars finnast flug á enn lægra verði. 17., 18., 20., og 22. mars kemst fólk sem sagt til Köben aðra leiðina á 12.900 krónur plús bókunargjald eða samtals 13.800 án alls farangurs.
Kaupmannahöfn er þó lítt spennandi kostur yfir háveturinn. Þar er fjandi kalt og raki töluverður sem þýðir að Íslendingum mörgum finnst miklu kaldara þar en hér heima. Enn verra er að í Kaupmannahöfn gerir enginn með íslenskar krónur í farteskinu sérstaklega góð kaup sé hugmyndin að versla jólagjafir.
Heimasíða Wow Air hér.






