Tíðindi

Vegas, L.A. og San Francisco á 204 þúsund

  12/11/2012febrúar 26th, 2014No Comments

Við fyrstu sýn hljómar þetta eins og sú tegund ferðar sem fólk þarf áratugi til að spara fyrir. Tíu nátta ferð til Las Vegas, Los Angeles og San Francisco, öll flug að meðtöldu flugi til og frá London, skoðunarferðir og fjögurra stjörnu pakki mestalla leiðina.

En það er bara við fyrstu sýn. Slík ferð er nú í boði frá London á rétt rúmlega 204 þúsund krónur á mann miðað við miðgengi krónu gagnvart pundinu þegar þetta er skrifað.

Er það breska ferðaskrifstofan Internet Traveller sem þetta býður fram til 15. nóvember næstkomandi og því skammur tími til stefnu en gildir það ekki líka um velflesta góða hluti. Ferðatíminn nær í raun allt fram á næsta sumar en umrætt tilboð miðast við ferðalag í janúar 2013.

Sem fyrr er ekki inni í þessu kostnaður við flug til og frá London en þangað ætti parið að komast alla jafna fyrir um 80 þúsund samtals. Því kemst par, hjón eða tveir vinir eða vinkonur í ansi safaríka ferð um þrjár eðalborgir í Bandaríkjunum fyrir 250 þúsund á kjaft.

Berum það saman við lágmarkskostnað við til dæmis bara flug með Icelandair í janúar til Orlando en það fæst ekki ódýrara en á rúmar 90 þúsund krónur á mann.

Umrædd ferðaskrifstofa starfar einungis á netinu og hefur öll tilskilin leyfi og tryggingar. Þá fær hún að auka ágæta dóma hjá Bretunum og virðist traustsins verð.