Tíðindi

Tilboð til Berlínar fram á haust

  27/08/2012desember 24th, 2013No Comments

Sé þörf á aðeins meiri menningu í æð en fæst hér heima geta áhugasamir nú keypt sér eitt stykki flugfar til Berlínar á tilboðsverði með Wow Air.

Auglýsir flugfélagið nú tilboðsverð 13.900 aðra leiðina til þýsku borgarinnar með öllum sköttum og gjöldum og gildir það tilboð til miðnættis í kvöld. Það er fantaverð og þýðir að fram og til baka er komist á undir 30 þúsund krónum fyrir manninn. Ekki dapurt.

Berlín er ein allra skemmtilegasta borg Evrópu í öllum skilningi þess orðs og í þokkabót er hún einnig ein allra ódýrasta borg Evrópu þó reyndar verðlag þar fari hækkandi smám saman. Ferðatími fyrir þá sem grípa gæs er fram til loka október.

Sá tími er hrein schnilld fyrir þá sem þykir lítið til Ljósanóttar í Reykjanesbæ koma. Um miðjan október fer nefninlega fram Ljósanótt í Berlín. Samanburður óþarfur með öllu.

Heimasíða Wow Air hér.