Hvaða meðalplebbi hefur ekki áhuga á ókeypis heimsreisu? Eða gefins flugferðum erlendis?
Það eru líklegast flestir og þetta er raunverulega í boði hjá ferðaskrifstofunni Kilroy sem hyggst opna útibú hérlendis að Skólavörðustíg á laugardaginn kemur.
Vitandi að tugir, hundruð eða jafnvel þúsundir einstaklinga eru reiðubúnir að bíða lengi í röð eftir að fá heimsreisu upp í hendurnar sísona býður ferðaskrifstofan tíu fyrstu sem inn koma laugardaginn 1. september tíu vinninga beint upp í hendurnar.
Þessi markaðsbrella er velþekkt orðin hérlendis því Frónbúar virðast láta ýmislegt yfir sig ganga til að fá ódýra eða ókeypis hluti. Sem aftur þýðir ókeypis fjölmiðlaauglýsingu fyrir Kilroy ef raðirnar verða nógu langar þegar opnað verður.
Hætt er við að sá ellefti í röðinni verði ansi hreint fúll með ekki neitt nema kvef og lungnabólgu því spáin þessa vikuna er rigning á rigningu ofan og fáir öfundsverðir af langri dvöl á gangstétt á Skólavörðustígnum. Jafnvel þó í boði séu fríar flugferðir og ein heimsreisa. Sem nota bene er ekki nema 400 þúsund króna virði. Og þess er gætt að nefna að Kilroy ber alls enga ábyrgð á heilsufari þeirra sem bíða.
Heimasíða Kilroy hér.






