Þó íslenskir hóteleigendur sjái ekkert að því að senda reykingafólk út í kuldann er önnur saga víða um Evrópu þó þar séu í gildi svipuð lög og hérlendis. Mjög fer í vöxt að betri hótel og veitingastaðir láti hanna og útbúa hlýleg og þægileg reykingaherbergi innandyra.

Ekki amaleg aðstaðan hér í reykherbergi Marriott hótelsins í Berlín. Fleiri og fleiri betri hótel bjóða gestum sínum ekki upp á að þvælast út til að fá sér smók
Reykingafólk er nefninlega fólk líka merkilegt nokk og það gera forráðamenn ýmissa hótela sér mætavel grein fyrir. Fyrir utan hversu hallærislegt er að hafa hóp fólks fyrir utan hótel að reykja sígarettur eru fjölmargir sem vilja fá sér vindil eftir mat og það fólk fer annað ef ekki er reykherbergi í boði. Svo einfalt er það.
Lúxushótelið Mayfair í London hefur nú komið upp eðalfínni reykaðstöðu á einni hæð þess hótels og eltir þar með önnur betri hótel borgarinnar sem mörg hver hafa þegar hafa látið útbúa aðstöðu þar sem vel fer um fólk jafnvel þó það reyki.
Sömu sögu er að segja frá París að mörg stærri hótelin þar bjóða upp á ágæta reykingaaðstöðu og oft innandyra. Margir betri veitinga- og skemmtistaðir Parísar bjóða hið sama.
Þetta er orðið sjálfsagt að hafa í huga fyrir alla þá sem njóta góðra vindla eða mökka sígarettur út í eitt að þarna úti er ekki öllum í kot eða þaðan af verra vísað.







